Til baka

Bíladagar

Bíladagar

Bíla- og tækjasýning og einskonar árshátíð allra áhugamanna um mótorsport

Bíla- og tækjasýning og einskonar árshátíð allra áhugamanna um mótorsport.
Bíladagar verða haldnir dagana 13. - 17. júní 2025

Bílaklúbbur Akureyrar býður upp á tjaldsvæði á félagssvæði sínu þessa daga þar sem gestir geta fengið gúmmífnykinn beint í æð. Á svæðinu er einnig boðið upp á opnar æfingarbrautir fyrir alla gesti Bíladaga. Allir viðburðir munu fara fram á svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg 13 nema að annað verði tekið fram.

Dagskrá 2025
*Birt með fyrirvara um breytingar

13. júní - Sandspyrna kl. 18
14. júní - Götuspyrna kl. 11
14. júní - Risa bílahittingur kl. 19 (VMA planið)
14. júní - Hóp rúntur upp á svæði kl. 20.45
14. júní - Bíla Limbo kl. 21
15. júní - Rallycross kl. 11
15. júní - Hávaðakeppni kl. 20
16. júní - Drift keppni kl. 11
16. júní - Burnout kl. 20.30
17. júní - Bílasýning kl. 10-18

Sjá nánari dagskrá og upplýsingar um miðasölu á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar og á fésbókarsíðu Bílaklúbbs Akureyrar.
Hvenær
13. - 17. júní
Hvar
Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur