Bjarni Ómar fagnar útgáfu breiðskífu sinnar Athvarf á Græna hattinum.
Platan Athvarf markar nýjan kafla í tónlistarferli Bjarna ekki síst vegna þess að platan kom út í tveimur útgáfum, upphaflega með íslenskum textum þann 14. janúar en í mars kom hún svo út með enskum textum undir heitinu Draw me ásamt einu aukalagi. Á tónleikunum verður flutt efni af nýju plötunum í bland við eldri lög af fyrri sólóplötum og nýlegum smáskífum.
Þá gaf hann út singulinn Þú fyllir hjartað í apríl og á árinu 2024 sendi hann frá sér blúsaða útgáfu af lagi Bubba Morthens Stál og Hníf en Bjarni tók þátt í sýningu Borgarleikhússins NÍu Líf sem hinn svonefndi Alþýðububbi.
Sólóplötur Bjarna hafa fengið verðskuldaða athygli enda um vandaðar laga- og textasmíðar að ræða. Textar við lög Bjarna eru afar opinskáir og tilfinningaríkir og ekkert er dregið undan með persónulegri nálgun bæði í hans eigin textum sem og meðhöfunda.
Þetta kvöld verður fullt af skemmtilegheitum við bestu aðstæður á hinum virta tónleikastað Norðlendinga Græna hattinum.
Sjáumst fimmtudaginn 16. október á Græna hattinum.
Tónleikarnir hefjast kl 21:00, húsið opnar klst áður.
Hljómsveitina skipa:
Ágúst Leósson - Rafgítar
Daníel Birgir Bjarnason – Slagverk
Jón Karl Ólafsson - Hammondorgel, Strengir
Níels Ragnarsson - Rafpíanó, Píanó og Brass
Ragnar Z Guðjónsson – Trommur
Svavar H Viðarsson - Bassagítar
Þröstur Leósson – Rafgítar
Bakraddir - Aðalbjörg Ellertsdóttir og Guðrún Kristín Huldudóttir