Til baka

Blóm og jóga í Leyningshólum

Blóm og jóga í Leyningshólum

Gönguvika Ferðafélags Akureyrar

Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Anna Guðmundsdóttir og Ingileif Ástvaldsdóttir.
Ekið upp á hólabrúnina í mynni Villingadals og gengið þaðan eftir vegi og stígum um hólana. Fræðsla og umræður um trjágróður og á leiðinni skoðum við þau blóm sem á vegi okkar verða og gildi þeirra í náttúrunni. Þátttakendur nota skilningarvitin til að dýpka upplifun sína af náttúrunni. Gangan fer að mestu fram í kyrrð þar sem tækifæri er veitt til að rækta sál og líkama í fallegri náttúru Eyjafjarðar með því að staldra við á göngunni til að gera nokkrar jógastöður undir berum himni. Létt ganga og ferð við flestra hæfi.
Þátttaka ókeypis.

Hvenær
mánudagur, júní 19
Klukkan
19:00-23:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
Þátttaka ókeypis