Systkinin Örn Eldjárn og Ösp Eldjárn hafa bæði starfað í tónlist um langt skeið og höfðu oft rætt um að gera plötu saman, sem varð að veruleika þegar Covid skall á og í kjölfar þess voru þau bæði flutt norður í heimahagana. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem þau höfðu bæði samið en ekki fundið farveg fyrir, fyrr en nú. Þau fengu systur sína, Björk Eldjárn, til að slást í hópinn og þar með var samhljómurinn fullkomnaður.
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru styrktir af Menningarsjóði Akureyrar, Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Tónlistarsjóði, Héraðssjóði og Listasumri.
Nánar um Akureyrarkirkju HÉR