Til baka

Blood Harmony - tónleikar á Minjasafninu á Akureyri

Blood Harmony - tónleikar á Minjasafninu á Akureyri

Blood Harmony heldur tónleika á sviðinu á Minjasafninu á Akureyri

Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar Eldjárn, Aspar Eldjárn og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2020 þegar heimsfaraldurinn skall á og sökum hans voru þau flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem Örn og Ösp höfðu bæði samið í gegnum árin en aldrei fundið þeim farveg, fyrr en nú. Sumarið 2021 héldu þau í sína fyrstu tónleikaferð um landið og síðan þá hafa þau komið fram á tónlistarhátíðum í Svíþjóð, Finnlandi og í Bretlandi. Systkinin hafa gefið frá sér fimm lög á streymisveitum og eru um þessar mundir að vinna í útgáfu breiðskífu.

Hvar: Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58

Hvenær: 3. júlí kl. 20

Aðgangur ókeypis

 


Viðburðurinn er hluti af Listasumri 2025

Hvenær
fimmtudagur, júlí 3
Klukkan
20:00-21:30
Hvar
Aðalstræti 58, Akureyri
Verð
Ókeypis