Til baka

Blue Moon - Tónleikar, myndlistarsýning og markaður

Blue Moon - Tónleikar, myndlistarsýning og markaður

Stefán Elí og Esha Fae bjóða upp á tónleika, myndlistarsýningu og markað
Hefur þú heyrt orðatiltækið “once in a blue moon”? Orðatiltækið gefur til kynna að sjaldgæfur og dulrænn viðburður eigi sér stað. Á Íslandi er sjaldgæft að sjá tunglið á sumrin svo við höfum ákveðið að heiðra tunglið og bjóða upp á einstaka og mystíska upplifun sem samanstendur af frumsaminni tónlist, leiklist og myndlist. Akureyrski Stefán Elí og ástralska Esha Fae eru bæði fjöllistafólk sem starfa við tónlist og myndlist og ferðast víða um hnöttinn.

Við komu gesta bjóða þau öllum upp á lífrænan og ljúffengan kakódrykk ásamt því að brenna copal og frankincense sem eru trjákvoður sem hreinsa orku og blessa rými. Tónlistin er fjölbreytt og lifandi og samanstendur af blandi popps, RnB, tónheilunar, indí og rapps. Ásamt þeim kemur einnig fram Rósa María Stefánsdóttir og flytur nokkrar íslenskar stemmur og hjartnæm lög.

Eftir atriðið bjóða þau gestum á sérstakan markað þar sem þau kynna handgerðar vörur frá ýmsum heimshornum sem þau hafa safnað á sínum ferðalögum, ásamt eigin list og fatnaði sem þau hanna sjálf. Þau Esha og Stefán reka fatafyrirtækið og vefsíðuna “Sacred Swag” þar sem þau prenta eigin málverk og grafíska hönnun á ýmiss konar fatnað, ásamt því að selja leiddar hugleiðslur, tónlist, málverk og fleira.

Þau hafa bæði ferðast mikið síðustu ár og flytja reglulega tónlistina sína erlendis. Þau hafa myndað tengingar við heimamenn víða t.d. í Perú og Gvatemala og vinna þau í samstarfi og bjóða upp á textíl og vefnað þaðan. Klæðin eru ofin ýmist úr alpaca ull, kinda ull og bómull. Þessi klæði verða hluti af markaðnum.

Myndlist Stefáns Elís hefur fengið mjög góðar viðtökur yfir síðastliðin ár og málverk hans ratað inn á heimili víða í Eyjafirði, á Íslandi og til ýmissa annarra landa. Hans nýjustu verk verða til sýnis bæði sem hluti af atriðinu og markaðnum.

Markmið viðburðarins er að sameina menningar frá mismunandi heimshornum og fagna fjölbreytileika og fegurð.
 
Hvenær
fimmtudagur, júlí 16
Klukkan
15:00-18:00
Hvar
Minjasafnskirkjan
Verð
Frítt inn