Bókasafn fyrir alla - sýning
Sýning á bókasöfnum fyrir alla úr lego kubbum.
Í mars komu krakkar úr 6. bekk í Brekkuskóla og Naustaskóla í heimsókn á bókasafnið. Þau fengu fræðslu um safnið og mikilvægi þess að bókasafnið sé staður fyrir alla þar sem allir geta verið á sýnum forsendum.
Krakkarnir fengu það verkefni að byggja bókasafn fyrir alla úr lego kubbum. Þau þurftu að hafa í huga ólíkar þarfir einstaklinga eins og til dæmis þarfir fólks í hjólastól eða fólk með einhverfu, lesblindu, litblindu og fleira. Hugmyndir þeirra eru nú til sýnis í andyri bókasafnsins og verða þar út apríl mánuð.
Endilega komið og skoðið bókasöfn framtíðarinnar.
Verkefnið er unnið út frá hugmyndum Build The Change sem er verkefni á vegum Lego.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.