Til baka

Bolli Már - Hæfilegur, uppistand

Bolli Már - Hæfilegur, uppistand

Skrifstofumaðurinn og leikarinn Bolli Már með sína fyrstu uppistandssýningu.

 

"Skrifstofumaðurinn, leikarinn og nú uppistandarinn Bolli Már Bjarnason setur á svið glænýtt uppistand og jafnframt sitt fyrsta. Uppistandssýningin Hæfilegur eru vangaveltur Bolla og misgáfulegar pælingar um mannlega hegðun, samskipti og málefni líðandi stundar. Sýningin hefur slegið í gegn fyrir sunnan og nú á að fara í víking, alla leið norður á Akureyri.

Bolli Már hefur undanfarin ár starfað sem texta- & hugmyndasmiður, framleiðandi og við þáttagerð. Fæddur í Vestmannaeyjum en búið í Laugardalnum síðustu 26 ár, þar sem hann hyggst eyða lífi sínu með konu og barni. Lifi Þróttur.

Bolli þekkir Akureyri vel enda mikið af hans fólki þaðan, Bolli elskar Akureyri og því upplagt að elska Bolla með miðakaupum, mætingu og dúndrandi lófataki.

Miðaverð kr.2.500

Sjáumst 8. júní!"

Hvenær
fimmtudagur, júní 8
Klukkan
21:00-22:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
2500