Borðspilamorgun
Spilum saman borðspil
Vetrarfrí grunnskólanna.
Fimmtudaginn 19. febrúar frá klukkan 10-12 hvetjum við ykkur til þess að koma á bókasafnið og spila saman borðspil.
Við munum týna til skemmtileg borðspil fyrir alla aldurshópa og hafa þau á kaffiteríunni okkar. Ykkur er frjálst að prófa eins mörg borðspil og þið viljið.
Það gæti svo verið góð hugmynd að taka eitt spil með sér heim en við eigum fullt af borðspilum til útláns.
Öll velkomin!
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.