Til baka

BRÚÐKAUPSVEISLAN

BRÚÐKAUPSVEISLAN

Gluggasýning í Hafnarstræti 88, hjartanlega velkomin!

Listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten bjóða enn á ný til gluggasýningar á vinnustofu þeirrar síðarnefndu. Sýningin er fyrir alla aldurshópa og er notið utan frá séð.

Í tilefni af Akureyrarvöku er slegið upp brúðkaupsveislu hvorki meira né minna þar sem rómantík, ást og gleði ráða ríkjum. Það má meðal annars sjá glitta í fondúsett á gjafaborðinu, þriggja hæða brúðkaupstertu, silfur og kristal svo ekki sé talað um brúðarklæðnað og önnur fínheit. Efniviðinn hafa systurnar sankað að sér meðal annars frá skrautmunasölunni Fröken Blómfríði og úr kistum og handröðum nytjamarkaða.

Systurnar hvetja öll til að líta við í brúðkaupsveisluna, njóta líðandi stundar og þess að hægja á sér, skemmta sér, rifja upp gamlar minningar og sleppa hugmyndafluginu lausu.

Athugið að á laugardeginum 29. ágúst kl. 15 verður efnt til kærleiksgjörnings og óformlegs útibrúðkaups við GLUGGANN. Um hópathöfn er að ræða þar sem hægt er að giftast sjálfu sér og því sem vekur gleði, kærleika og hamingju í lífinu.

Öll velkomin!

Hvenær
27. ágúst - 17. september
Hvar
Hafnarstræti 88
Verð
Ókeypis