Til baka

Bryðjuskál í Eyjafirði

Bryðjuskál í Eyjafirði

Gengið er upp frá bænum Sigtúnum um gróið land.

7. júní, sunnudagur

Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Gunnar Már Gunnarsson

Bryðja var tröllkerling sem átti heima í Bryðjuskál í fjallinu fyrir ofan Munkaþverá. Gengið er upp frá bænum Sigtúnum um gróið land, upp með Smáragili þar sem má sjá fossaröð, þar á meðal Silfurfoss. Öll ferðin er nokkuð á fótinn. Farið verður rólega til að njóta ferðarinnar. Sama leið farin til baka.

Gönguhækkun: 270 m.

Hvenær
sunnudagur, júní 7
Klukkan
10:00-14:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
2.200 / 3.900 kr.