Til baka

Dægurlagadaður

Dægurlagadaður

Kl. 19.00-20.00 - Notaleg stemning með Tríói Akureyrar og dægurlögum í kaffihúsinu Garúnu í Hofi í tilefni Akureyrarvöku.

Dægurlög eru dýrleg og um að gera að njóta þess að heyra þau flutt yfir kaffi og kökum.

Tríó Akureyrar mun troða upp í kaffihúsinu Garúnu í Hofi í tilefni Akureyrarvöku og daðra svolítið við nokkur gömul og góð dægurlög.

Tríóið er skipað tónlistarmönnunum Valmari Väljaots tónlistarsjentílmanni, Jóni Þorsteini Reynissyni afburðanikkara og Erlu Dóru Vogler söngskvísu.
Tríó Akureyrar hefur nú starfað um nokkurra ára skeið og m.a. troðið upp með léttar dægurlagasmurðar sumardagskrár, októberréttarfest á haustin og jólalega jólatónleika.


Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku.

Hvenær
laugardagur, ágúst 27
Klukkan
19:00-20:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir
Nánari upplýsingar

Nánar um tríóið HÉR