Til baka

Dikta

Dikta

Dikta loksins aftur á Akureyri

Á síðustu 20 árum hefur Dikta skipað sér sess á meðal vinsælustu hljómsveita landsins.

Dikta hefur á sínum farsæla ferli komið víða við, gefið út fimm breiðskífur, haldið í mörg tónleikaferðalög utan landsteinanna og spilað á öllum helstu tónleikasviðum landsins. Þeir hafa vanið komur sínar til okkar á Græna hattinum í gegnum árin og eru nú loksins að snúa aftur.

Í ár fagnar Dikta 20 ára afmæli útgáfu plötunnar Hunting for Happiness, sem var valin ein af hundrað bestu plötum Íslandssögunnar, en með þeirri plötu festi Dikta sig í sess sem ein frambærilegasta rokkhljómsveit á Íslandi. Hin frábæra plata Easy Street frá árinu 2015 fagnar einnig 10 ára afmæli í ár en vel valin lög af öllum plötum Diktu fá að heyrast á þessum einstaka viðburði sem enginn aðdáandi Diktu, nýr eða gamall, ætti að láta framhjá sér fara.

Miðasala hefst 25. sept. kl. 10 á graenihatturinn.is

Hvenær
laugardagur, október 18
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni Hatturinn
Verð
6900