Til baka

Dimma

Dimma

Tónleikar

DIMMA verður með alvöru rokktónleika á Græna Hattinum laugardaginn
11. júlí, þar sem þeir hafa áður spilað marga af sínum bestu tónleikum.

DIMMU þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarin
ár og hafa þeir gefið út fimm breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt
fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.

Í lok síðasta árs sendi sveitin frá sér fyrsta lagið með nýrri liðskipan en
það var lagið „Þögn“ sem notið hefur talsverðra vinsælda.

Þeir fylgdu því svo eftir með laginu „Almyrkvi“, sem var framlag DIMMU til
Söngvakeppninnar 2020.

Þessi lög verða að sjálfsögðu leikin á tónleikunum ásamt úrvali af eldri
perlum sveitarinnar og því ætti enginn rokkunnandi að láta sig vanta á tónleika
DIMMU á Græna Hattinum.

DIMMA:

Stefán Jakobsson : Söngur

Ingó Geirdal : Gítar 

Silli Geirdal : Bassi 

Egill Örn Rafnsson : Trommur

Hvenær
laugardagur, júlí 11
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar

graenihatturinn.is