Til baka

Dimma

Dimma

Á tónleikunum verða leikin lög af nýjustu plötunni Þögn ásamt úrvali af eldra efni sveitarinnar.

DIMMA leikur sína fyrstu tónleika á nýju ári á Græna Hattinum laugardaginn 5.febr.

DIMMA hefur um árabil verið ein allra vinsælasta rokksveit landsins og hefur gefið út sex hljóðversplötur, fimm tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.

Þá hefur sveitin einnig hlotið mikið lof fyrir tónleika sína, sem þykja kraftmikið sjónarspil og orkan frá þeim lætur engan ósnortinn.

Nýjasta breiðskífa DIMMU, sem ber heitið Þögn, hefur fengið frábæra dóma og viðtökur en hún fór í fyrsta sæti Tónlistans yfir mest seldu plötur landsins og varð þar með fimmta plata DIMMU á ferlinum til að ná toppsætinu.

Á tónleikunum á Græna Hattinum verða leikin lög af Þögn ásamt úrvali af eldra efni sveitarinnar.

DIMMA
Stefán Jakobsson: Söngur
Ingó Geirdal: Gítar
Silli Geirdal: Bassi
Egill Örn Rafnsson: Trommur

Hvenær
laugardagur, febrúar 5
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4990