Til baka

Dimma

Dimma

Dimma með tónleika á Græna hattinum
DIMMA verður með tónleika á Græna Hattinum, Akureyri laugardaginn 11. júní en 10 ár eru nú liðin frá því að sveitin lék sína fyrstu tónleika á Hattinum og hafa þeir verið fjölmargir síðan enda ávallt uppselt og stemningin engu lík.
 
DIMMA hefur um árabil verið ein allra vinsælasta rokksveit landsins og hefur gefið út sex hljóðversplötur, fimm tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.
Þá hefur sveitin einnig hlotið mikið lof fyrir tónleika sína, sem eru kraftmikið sjónarspil og orkan frá þeim lætur engan ósnortinn en DIMMA var m.a tilnefnd til bæði Hlustendaverðlaunanna og Íslensku Tónlistarverðlaunanna í ár.
 
Nýjasta breiðskífa DIMMU, sem ber heitið Þögn, hefur fengið frábæra dóma og viðtökur en hún fór í fyrsta sæti Tónlistans yfir mest seldu plötur landsins og varð þar með fimmta plata hljómsveitarinnar á ferlinum til að ná toppsætinu.
 
Á tónleikunum á Græna Hattinum verða leikin lög af Þögn í bland við öll vinsælustu lög sveitarinnar og má því búast við eldheitri og sveittri rokkstemningu að hætti DIMMU.

DIMMA
Stefán Jakobsson: Söngur
Ingó Geirdal: Gítar
Silli Geirdal: Bassi
Egill Örn Rafnsson: Trommur
Hvenær
laugardagur, júní 11
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900