Til baka

DIMMA

DIMMA

Dimma loksins aftur eftir tveggja ára hlé.
DIMMA rís brátt úr dvala og stígur aftur á svið á Græna Hattinum eftir tveggja ára hlé!
 
DIMMU þarf vart að kynna enda verið ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarinn áratug og gefið út sex breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem hafa fest sig í sessi í hjörtum landsmanna.
 
Birgir Jónsson trommuleikari hefur nú gengið aftur til liðs við DIMMU eftir 6 ára hlé og er sveitin því skipuð sömu fjórmenningum og gerðu saman nokkrar vinsælustu rokkplötur síðasta áratugar á Íslandi.
 
DIMMA hefur löngum þótt ein öflugasta rokksveit landsins og hefur oftar en ekki verið uppselt á tónleika þeirra.
Tónleikarnir á Græna Hattinum eru viðburður sem þú vilt ekki missa af!
 
DIMMA:
Stefán Jakobsson : Söngur
Ingó Geirdal : Gítar
Silli Geirdal : Bassi
Birgir Jónsson : Trommur
Hvenær
laugardagur, maí 25
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
6900