Dragkeppni norðurlands verður haldin í Rósenborg á Akureyri þann 15. maí klukkan 19:30.
Keppendur eru hvattir til að koma með skemmtilegt og skapandi atriði þar sem allt er leyfilegt og hægt er að flytja atriði að eigin vali. Markmiðið er einfaldlega að hafa gaman, sýna sköpunargleði og njóta þess að koma fram. Öllum er velkomið að koma og horfa á og húsið opnar klukkan 19:00!