Draugaslóð er ómissandi hluti Akureyrarvöku þar sem vættir og hulduverur verða á sveimi um Hamarkotstún.
Nýir draugar og gamlir ásamt öðrum kynjaverum mæta til að skapa nýjar og drungalegar minningar. Ekki er hægt að lofa að draugarnir séu allir leikarar en áhersla er á skemmtilega og ögn hrollvekjandi upplifun.
Gæsla verður á staðnum.
Að gefnu tilefni eru gestir beðnir að sýna varkárni og tillitssemi við aðra sem og alla drauga. Sumir draugar geta verið óhugnarlegri en aðrir og einhverjir mögulega hrekkjóttir. Munum að sýna kurteisi og skemmtum okkur fallega saman.
Athugið að börn eru á ábyrgð forráðafólks!
Vegna Draugaslóðar á Hamarkotstúni verða hlutar Þórunnarstrætis, Hamarstígs og Byggðavegs lokaðir fyrir umferð ökutækja frá kl. 21:30-23:45 föstudagskvöldið 29. ágúst en þó geta íbúar og neyðaraðilar ekið um Þórunnarstræti og hluta Hamarstígs. Kort af svæðinu og lokunum mun birtast fljótlega.
Gestir Draugaslóðar geta nýtt sérstök bílastæði sem verða á tjaldsvæðisreitnum við Þórunnarstræti frá kl. 21:30-23:45. Björgunarsveitin Súlur mun stýra umferð um bílastæðið. Gestir eru eindregið hvattir til að nýta aðra samgöngumáta að svæðinu.
Munum að fátt er hollara en góð gönguferð um bæinn fagra.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 29. ágúst
Tímasetning: kl. 22:00 – 23:30
Staðsetning: Hamarkotstún
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Viðburðurinn er styrktur af Landsbankanum.