Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins Íslands verður Kór Akureyrarkirkju á þjóðlegu nótunum 4. maí kl 16.00 í Akureyrarkirkju. Á tónleikum syngur kórinn lög tengd lýðveldistökunni og -afmælinu, íslensk þjóðlög ásamt öðrum lögum sem eru þjóðinni kær. Ókeypis er inn á tónleikana - verið öll velkomin!
Ljósmynd: Minjasafnið á Akureyri, ljósmyndari Hallgrímur Einarsson