Til baka

"Ég heyri klukknaklið" - Ítalíuferð Davíðs Stefánssonar skálds.

"Ég heyri klukknaklið" - Ítalíuferð Davíðs Stefánssonar skálds.

Dagskrá Valgerðar H. Bjarnadóttur um ferðir Davíðs Stefánssonar á Ítalíu.
Dagskrá Valgerðar H. Bjarnadóttur þar sem hún segir sögur af ferðum Davíðs Stefánssonar um Ítalíu, og ekki síst Assísi, og les úr ljóðum hans og öðrum skrifum og sýnir myndir.
 
Ítalíuljóðin eru með þekktustu og vinsælustu ljóðum Davíðs Stefánssonar. Hver þekkir ekki Katarínu og hefur heyrt af Capri, Bláa hellinum og dansinum tarantellu? Tína Rondóni hefur líka heillað okkur mörg. Davíð segist í ljóðinu elska bæði hana og hennar umbríska vín og hann saknar hennar og kirkjuklukknanna í Assísí, þegar hann snýr heim.
 
Ég nefni nafnið þitt,
og nóttin verður hlý.
Ég heyri klukknaklið
frá kirkju í Assisí.
 
Ferð hans til Ítalíu, veturinn 1920 til 21, hafði mikil og varanleg áhrif á skáldið. Og í Assísí, þar sem klukkurnar klingja, kynntist hann Heilögum Frans og heillaðist af kenningum hans. Í bréfi til vinar síns, Björns Oddssonar skrifar hann: "Ég man ekki hvort ég hef sagt þér frá dvöl minni í Assisi. Þar skulum við byrja. Þar hefur mér liðið best á allri för minni. Það er guðdómlegur bær.“
 
Í janúar s.l. ákvað Valgerður að heimsækja Assísí og kynnast þessum helga bæ, sem skáldið aldrei gleymdi. Í þessari dagskrá segir hún sögur af ferðum Davíðs um Ítalíu og ekki síst Assísi og les úr ljóðum hans og öðrum skrifum og sýnir myndir.
 
Valgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Hún las þau, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum. Hún gegndi hlutverki húsfreyju í Davíðshúsi í nokkur sumur og sökkti sér þá á ný inn í þennan heim ástar, sögu, trúar, ævintýra og þjáningar, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu.
 
Dagskráin er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningar- og viðurkenningasjóður KEA styrkir viðburðinn.
 
Öll hjartanlega velkomin!
Hvenær
föstudagur, maí 10
Klukkan
13:30-15:00
Hvar
Öldrunarheimilið Hlíð, Austurbyggð, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir