Til baka

Ein með öllu og Íslensku sumarleikarnir

Ein með öllu og Íslensku sumarleikarnir

Ein með öllu er fjölskylduhátíð sem haldin er um verslunarmannahelgina á Akureyri ár hvert. Árið 2020 verður hún haldin 30. júlí- 2. ágúst.

Hátíðin býður upp á fjölda viðburða og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem er í boði er tívolí, barnaskemmtun, Óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju, markaðsstemning í miðbænum, fjáröflunarviðburðurinn „Mömmur og möffins“ og „Sparitónleikar“ á lokakvöldinu sem eru stærstu tónleikar hátíðarinnar. Þar koma fram þekktir söngvarar, hljómsveitir og upprennandi stjörnur. Hátíðinni lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu.

Samhliða Einni með öllu eru Íslensku Sumarleikarnir haldnir þar sem m.a. fer fram Kirkjutröppuhlaupið við Akureyrarkirkju, strandhandboltamót í Kjarnaskógi, hópkeyrsla mótorhjólaklúbbsins Tíunnar og þríþrautarkeppni á Hrafnagili. 

 

Allar upplýsingar um dagskrá og margt fleira má finna á heimasíðu leikanna www.einmedollu.is

Hægt er að senda fyrirspurnir um hátíðina á netfangið david@vidburdastofa.is.

Hvenær
30. júlí - 2. ágúst
Hvar
Akureyri
Nánari upplýsingar