Eru barneignir að verða forréttindi sumra?
Opinn fundur á vegum Zontakl. Þórunnar hyrnu. Fyrirlestur Sunnu Símonardóttur.
Fyrirlestur Sunnu Símonardóttur, lektors við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Opin fundur á vegum Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu á Akureyri.
Síðastliðinn áratug hefur fæðingartíðni á Íslandi verið allt að því í frjálsu falli. Yfirleitt er miðað við að hver kona þurfi að eignast sem nemur 2,1 barni á lífsleiðinni til þess að viðhalda mannfjöldanum en árið 2024 var fæðingartíðnin komin niður í 1,56 börn. Það sem fyrst og fremst keyrir þessa þróun áfram er seinkun foreldrahlutverksins, þ.e. fólk bíður lengur með að eignast sitt fyrsta barn og ennfremur benda rannsóknir til þess að barnleysi hafi aukist. Í þessu erindi verður gerð grein fyrir niðurstöðum viðamikils rannsóknarverkefnis sem hefur það markmið að skoða og greina þessa þróun með fjölbreyttum aðferðum.
Sunna Símonardóttir lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands 2017. Hún hefur sérhæft sig í rannsóknum á foreldrahlutverkinu, kyngervi og fæðingartíðni. Hún stýrir nú, ásamt öðrum, rannsóknarverkefninu Áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi (
https://fibi.hi.is/).