Við fögnum tveimur nýjum bókverkum í Pastel ritröð eftir tvo frábæra og ólíka listamenn.
Verk nr 39 eftir Boaz Yosef Friedman heitir "Born in a Burning house" og samanstendur af teikningum, prósum og ljóðum. Boaz er myndlistamaður og starfar út frá Reykjavík.Verk nr 40 í Pastel ber titilinn "Gjaldfelld" og er eftir Ester Hilmarsdóttur rithöfund með meiru í Aðaldal í Þingeyjarsýslu. Ester kemur hér með skörp ljóð og fínlegar teikningar.
Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir flytur tónlist.
Verkin eru gefin út í 100 árituðum og númeruðum eintökum og hægt að nálgast þau til dæmis á www.pastel.is.
Grafíska hönnun og uppsetningu fyrir prent gerir Cave Canem hönnunarstofa á Akureyri og Prentsmiðjan á Akureyri hefur umsjón með prentun. Útgefandi er Flóra menningarhús á Akureyri.
Menningarverkefnið Pastel ritröð hófst árið 2017 og er styrkt af Uppbyggingarsjóði Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Menningarsjóði Akureyrar og Útgáfufélaginu.