Evolytes Sögustund
Sögustund og föndur
Höfundar Evolytes koma til okkar og lesa fyrir okkur bókina Kókoshnetukeppnin sem er fyrsta lesbókin þeirra.
Bókin er eftir Írisi E. Gísladóttur og er skemmtileg og spennandi saga fyrir börn á aldrinum 5 til 9 ára.
Logi og Stampi eru bestu vinir en þegar vinir fara að keppa getur ýmislegt gerst. Báðir eru sannfærðir um að eiga fleiri kókoshnetur en hinn. En hvor hefur rétt fyrir sér? Í þessari skemmtilegu sögu fylgjast börnin með ævintýrum vinanna á sama tíma og þau læra að skilja tölur og bera saman magn á eðlilegan og leikandi hátt.
Sagan vekur forvitni, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og skapar skemmtilegar samverustundir. Aftast í bókinni eru einfaldar spurningar sem styðja við skilning og opna á góðar umræður eftir lesturinn.
Eftir upplesturinn verður boðið upp á föndur.
Öll velkomin! Aðgangur ókeypis.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.