Til baka

Eyfirski safnadagurinn

Eyfirski safnadagurinn

Líttu við á söfnunum á sumardaginn fyrsta.

Velkomin á Eyfirska safnadaginn!

Sumardagurinn fyrsti hefur verið haldinn hátíðlegur um langa hríð á Íslandi. Þá voru gefnar gjafir. Sumargjöf safnanna er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í 19 skiptið.

Þann 23. apríl bjóða söfnin við Eyjafjörð upp á sumargjöf við allra hæfi. Söfnin eru opin frá kl. 13–16, sum lengur, og er aðgangur ókeypis.

Boðið verður upp á útgáfuhóf, ratleiki, útileiki, húllasmiðju, afrískan dans, listsmiðjur, leiðsagnir, ljóðalestur ... og auðvitað fjölbreyttar sýningar.

Þátttakendur 2026:

Eyjafjarðarsveit:
Smámunasafnið
Hælið

Akureyri:
Flugsafnið
Mótorhjólasafnið
Iðnaðarsafnið
Minjasafnið
Nonnahús
Leikfangahúsið
Flóra – Menningarhús Sigurhæðum
Listasafnið
Davíðshús

Hrísey:
Hús Hákarla-Jörundar

Siglufjörður:
Ljóðasetrið

Hvenær
fimmtudagur, apríl 23
Klukkan
13:00-16:00
Hvar
Hrísey
Verð
Ókeypis