Til baka

Eyfirski safnadagurinn - sumardagurinn fyrsti

Eyfirski safnadagurinn - sumardagurinn fyrsti

Sumarið byrjar á söfnunum - ókeypis inn

Sumarið byrjar á söfnunum því í tilefni sumardagsins fyrsta er ókeypis aðgangur að öllum söfnum. 

Veist þú hvað er að finna á söfnunum? Eða hvað er ekki að finna þar?

Taktu þátt í myndabingói á Iðnaðarsafninu, Nonnahúsi, Minjasafninu og Leikfangahúsinu. Verðlaun í boði á báðum stöðum.

Syngjum inn sumarið með Snorra Guðvarðar kl. 14. S

Blásum burt síðustu skaflana með sápukúlum og húllum í burtu kalda loftið.

Þá er upplagt að taka ljósmynd og senda inn í ljósmyndamaraþon barnanna á barnamenningarhátíð. 

Þemun eru:

1. Uppáhaldsstaðurinn minn á Akureyri
2. Hverfið mitt
3. Sumardagurinn fyrsti
4. Litir
5. Búðarferð

Verið öll velkomin.

Hvenær
fimmtudagur, apríl 25
Klukkan
13:00-16:00
Hvar
Aðalstræti 58
Verð
Ókeypis