Til baka

Eyþór Ingi og Babies flokkurinn

Eyþór Ingi og Babies flokkurinn

Eyþór Ingi og Babies flokkurinn flytja þursa-plötuna Gæti eins verið, í held sinni og fleiri góð Þursalög fá að fljóta með.
Í tilefni 40 ára útgáfu plötunnar “Gæti eins verið” ætla Eyþór Ingi & Babies flokkurinn að halda tónleika laugardaginn 4. Febrúar á Græna hattinum þar sem platan verður leikin í heild sinni og hver veit að nokkur önnur Þursalög fái að fljóta með. Hinn íslenski Þursaflokkur kom fyrst saman í febrúar 1978 og starfaði óslitið til 1982. Á þeim árum gáfu þeir út 3 breiðskífur, Hinn íslenzki Þursaflokkur (1978), Þursabit (1979), Gæti eins verið (1982) og eina tónleikaplötu, Á hljómleikum (1980). Árið 2008 gáfu þeir svo út plötu með lögum sem höfði ekki heyrst áður, Ókomin forneskja, sem og tónleika plötu, Í höllinni á þorra. Þursaflokkurinn voru þeir Ásgeir Óskarsson, Egill Ólafsson, Karl Sighvatsson, Tómas Magnús Tómasson, Rúnar Vilbergsson og Þórður Árnason. Hljómsveitina skipa þeir: Eyþór Ingi Gunnlaugsson: söngur Elvar Bragi Kristjónsson: bassi Ingimundur Guðmundsson: hljómborð Ísak Örn Guðmundsson: gítar Skúli Gíslason: slagverk.
Hvenær
laugardagur, febrúar 4
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900