Til baka

Eyþór Ingi og Babies heiðra Þursaflokkinn

Eyþór Ingi og Babies heiðra Þursaflokkinn

Eyþór Ingi og Babies heiðra Þursaflokkinn á þorra.

Í tilefni 45 ára afmælis plötu Þursaflokksins “Þursabit” ætla Eyþór Ingi & Babies flokkurinn að halda tónleika föstudaginn 16.feb.á Græna hattinum og flytja okkur öll bestu lög Þursaflokksins.
Hinn íslenski Þursaflokkur kom fyrst saman í febrúar 1978 og starfaði óslitið til 1982.
Á þeim árum gáfu þeir út 4 breiðskífur, Hinn íslenzki
Þursaflokkur (1978), Þursabit (1979), Gæti eins verið (1982) og eina
tónleikaplötu, Á hljómleikum (1980). Árið 2008 gáfu þeir svo út plötu með lögum sem ekki höfðu heyrst áður, Ókomin forneskjan, sem og tónleikaplötu, Í höllinni á þorra.

Hvenær
föstudagur, febrúar 16
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900