Til baka

Fegurð fjarða

Fegurð fjarða

Ljósmyndasýning sem vekja á athygli á fegurð og viðkvæmni fjarða Íslands

Að ströndum Íslands skolast rusl sem kemur alls staðar að úr heiminum – okkar eigið rusl og annarra. Talið er að 70% alls rusls endi í lífkerfi hafsins, 15% flýtur um í sjónum og önnur 15% skolast upp á strendur landsins.

FEGURÐ FJARÐA er margþætt samstarfsverkefni heimamanna við Siglufjörð, Ólafsfjörð og Eyjafjörð, listamanna og Vitafélagsins-íslensk strandmenning. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar og læra að taka ábyrgð á umgengni við haf og strönd.

Á tímabilinu 1. júní til 1. október 2025 verða fjölbreyttir viðburðir í boði í formi fræðslu  listsköpunar, gjörninga, tónlistar og myndlistar, auk ljósmyndasýninga og fræðslusýninga á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Svarfaðardal, Hrísey, Hjalteyri, Akureyri og Grenivík.

Allar ljósmyndir eru teknar af Veigu Grétarsdóttur.

Hvenær
31. maí - 5. ágúst
Hvar
Drottningarbraut