Til baka

Ferð í Flatey á Skjálfanda 6. júní

Ferð í Flatey á Skjálfanda 6. júní

Siglt frá Húsavík með Norðursiglingu út í Flatey

6. júní, laugardagur

Mæting kl. 9 á Húsavík. Siglt frá Húsavík kl. 9:30.

Fararstjórn: Margrét Kristín Jónsdóttir

Siglt frá Húsavík með Norðursiglingu út í Flatey. Siglingin tekur um tvær klukkustundir. Náttúra og mannvirki eyjunnar skoðuð undir leiðsögn. Boðið verður upp á kaffi/kakó/te í Bjarmaskúr í lok göngu. Áætlaður tími í eyjunni um 2-3 klst. Siglt til baka til Húsavíkur seinnipartinn. Stoppað við Gatanöf á heimleiðinni fyrir þá sem vilja.

Verð: 22.000 / 25.000 kr. Innifalið: Sigling, hlýir gallar, kakó og snúðar um borð, fararstjórn, leiðsögn um eyna og kaffi/kakó/te.

Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 5.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.

Hvenær
laugardagur, júní 6
Klukkan
09:00-18:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
22.000 / 25.000 kr. Innifalið: Sigling, hlýir gallar, kakó og snúðar um borð, fararstjórn, leiðsögn um eyna og kaffi/kakó/te.