Fjölskyldujólasamvera
Horfum á jólamynd, skreytum gjafapoka og litum jólamyndir
Fjölskyldujólasamvera laugardaginn 28. nóvember frá klukkan 13:00-15:00.
Við ætlum að horfa saman á jólamynd og skreyta gjafapoka sem þið getið síðan notað undir jólagjafir.
Inni í barnadeild verður í boði að lita jólamyndir.
Endilega komið og njótið með okkur.
Öll velkomin!
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.