Til baka

Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

Sunnudaginn 5. júní kl. 11-12 verður fjölskylduleiðsögn í Listasafninu.

Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá ljósmyndasamsýningunni, Svarthvítt, og sýningu Auðar Lóu Guðnadóttur, Forvera.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í smiðju og að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.

Hvenær
sunnudagur, júní 5
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir