Til baka

Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

Sýning Gústavs Geirs Bollasonar, Sandtímasálmur um fölnandi jarðarblóm

Sunnudaginn 25. september kl. 11-12 verður fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu Gústavs Geirs Bollasonar, Sandtímasálmur um fölnandi jarðarblóm.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í smiðju og að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.

Hvenær
sunnudagur, september 25
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir