Til baka

Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

Sunnudaginn 29. janúar kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu.

Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá, Vatnið og landið, og samsýningunni Solander 250: Bréf frá Íslandi, og fjallar um einstaka verk.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.

Hvenær
sunnudagur, janúar 29
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir