Sunnudaginn 22. nóvember kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segja börnum og fullorðnum frá fjölbreyttum verkum á yfirstandandi sýningum. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.
Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að fræðast um myndlist, skapa saman listaverk og eiga góða stund í Listasafninu. Öll velkomin!
*Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.