Sunnudaginn 23. ágúst 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segja börnum og fullorðnum frá innsetningu svissneska listamannsins Zimoun. Hann skapar staðbundnar hljóðinnsetningar og skúlptúra sem að megninu til eru gerðar úr endurunnu efni úr daglegu lífi og iðnaði. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar.
Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að skoða innsetningu Zimoun og skapa eigið verk. Öll velkomin!
*Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.