Til baka

Fjölskylduleiðsögn & listsmiðja

Fjölskylduleiðsögn & listsmiðja

Svartur blettur og 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar

Sunnudaginn 18. október kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segja börnum og fullorðnum frá sýningunum Svartur blettur og 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.

Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að fræðast um sýningarnar, skapa saman listaverk og eiga góða stund í Listasafninu. Öll velkomin!

*Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.

Hvenær
sunnudagur, október 18
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir