Til baka

Fjölskylduleiðsögn og endurvinnslusmiðja

Fjölskylduleiðsögn og endurvinnslusmiðja

Skemmtileg og fræðandi stund í Listasafninu á Akureyri.

Sunnudaginn 27. nóvember kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningum Kristins G. Jóhannssonar, Málverk, og Rebekku Kühnis, Innan víðáttunnar.

Í tilefni Evrópsku nýtniviku verður boðið upp á endurvinnslusmiðju að lokinni leiðsögn. Þar verður áhersla lögð á að gefa hlutum framhaldslíf með því að endurnota og endurvinna.

Skoðaðu fleiri skemmtilega viðburði í Evrópsku nýtnivikunni HÉR


Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.

Hvenær
sunnudagur, nóvember 27
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir