Til baka

Almenn leiðsögn um samsýninguna Hringfarar

Almenn leiðsögn um samsýninguna Hringfarar

Spennandi leiðsögn í Listasafninu.

Almenn leiðsögn um samsýninguna Hringfarar.

Samsýning
Hringfarar
26.08.2023-14.01.2024
Salir 02 03 04 05

Listamennirnir sem hér koma saman vinna út frá náttúrulegum ferlum, efniviði og samhengi. Hver og einn hefur sína persónulegu nálgun, en sameiginlega mengið er efniviður úr nærumhverfinu, sem hver og einn vinnur með á sinn persónulega hátt.

Verk Sólveigar Aðalsteinsdóttur endurspegla hugleiðingar um tíma og umhverfi, náttúruna, vöxt og gróður, þar sem mörk innri og ytri veruleika eru ekki endilega ljós.

Elsa Dóróthea Gísladóttir vinnur með hverfulleika, sjálfbærni, ræktun, lífkerfi og alkemíu hvunndagsins. Tíminn er afar mikilvægur þáttur í hennar verkum.

Guðjón Ketilsson vinnur gjarnan með fundna hluti sem geyma minningar og sögur liðinna atburða. Hann skrásetur þá, endurskipuleggur og setur í annað samhengi.

Daglegt umhverfi hefur oft verið kveikjan að verkum Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur, svo sem rauðrófuhýði í vatni sem hefur myndað rauðan lit og pappírsörk á glugga sem raki hefur teiknað á.

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 27. ágúst
Tímasetning: kl. 13.00 (kl. 13.30 - ensk leiðsögn)
Staðsetning: Listasafnið á Akureyri, Salir 02 03 04 05
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir


Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku 2023.

 

Hvenær
sunnudagur, ágúst 27
Klukkan
13:00-13:30
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir