Til baka

Fjórir tindar í Eyjafirði. Laufásstrandarfjöllin

Fjórir tindar í Eyjafirði. Laufásstrandarfjöllin

Gangan hefst við malarnámuna við þjóðveginn milli Ystu Víkur og Fagrabæjar.

22. ágúst, laugardagur

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Hulda Jónsdóttir

Gangan hefst við malarnámuna við þjóðveginn milli Ystu Víkur og Fagrabæjar. Gengið upp á Ystuvíkurfjall og norður á Kræðufell, þaðan niður í Fagrabæjargil (bratt og skriður) og upp á Dýrðarnípu yfir á Dýrðarbungu og endað á Laufáshnjúk. Síðustu 300 metrarnir eru svolítið brölt. Að lokum er farið niður af Laufáshnjúk þar sem bílar munu bíða en byrja þarf á að ferja bíla þangað. Útsýnið af fjöllunum er mikið og geysifagurt bæði til suðurs og norðurs.

Vegalengd: 11–12 km. Gönguhækkun: 1000 m.

Verð: 5.200 / 6.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.

Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
laugardagur, ágúst 22
Klukkan
08:00-15:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
5.200 / 6.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.