Til baka

Fjörubingó með Skoppu og Skrítlu á Akureyri!

Fjörubingó með Skoppu og Skrítlu á Akureyri!

Hvetjum allar fjölskyldur til að koma í fjörubingó með Skoppu og Skrítlu!

Fjörubingó með Skoppu og Skrítlu!

Skoppa og Skrítla hafa verið að bjóða uppá Fjörubingó skemmtanir í kringum höfuðborgarsvæðið. Þá hvetja þær foreldra og ömmur og afa til að koma og eiga gæðastund með börnunum sínum við ævintýraleit í fjörunni. Skoppa og Skrítla afhenda Fjörubingóspjöld og fjölskyldan fær afnot af litlum poka með skóflu og fötu, kíki og stækkunargleri til aðstoðar við Fjörubingóið. Verðlaun eru veitt fyrir bingó og hægt að vinna sér inn aukaverðlaun fyrir að finna hjartasteina, reisa glæsilega sandkastala og að fleyta kerlingar. Mikið lýðheilsumál sem nærir og styrkir böndin.

Akureyrabær býður fjölskyldum á Akureyri að koma og hitta Skoppu og Skrítlu í fjörunni við Sílabás laugardaginn 19.sept kl. 14.30-16.30. Fjörið stendur yfir í tvo tíma og hver og einn dvelur þann tíma sem hentar.  Hvetjum alla til að klæða sig eftir veðri og njóta samverunnar.

Hvenær
laugardagur, september 19
Klukkan
14:30-16:30
Hvar
Sílabás
Verð
frítt