Til baka

Flæði

Flæði

Sýning á vatnslitaverkum, pennateikningum og olíuverkum

Flæði - vatnsflæði og litaflæði einkenna þessa sýningu. Hún er tilraunakennd og ber með sér þörf fyrir að leika sér að litum og formum.

Á þessari sýningu flétta ég saman ýmsum verkefnum sem tengjast vatnslitaævintýri mínu sem hófst fyrir fjórum árum síðan þegar ég dvaldi nokkra daga í fallegu sveitahéraði í Frakklandi, nánar tiltekið í Saint Pierre sur Orthe. Þar lærði ég undirstöðu vatnsflæðis og meðferð lita undir styrkri leiðsögn Margrétar Jónsdóttur, listakonu í Mögguhúsi, og lærði jafnframt að elska frönsku sveitirnar í Loire dalnum.

Einnig fá að fljóta hér með nokkur verk sem unnin eru með pennum og vatnslitum, verk sem ætluð eru sérstaklega til tækifærisgjafa. Þau verk eru unnin eftir sérpöntunum, frumverk eða eftirprentanir.

Opnun föstudaginn 18. feb kl 17-18.
Opið laugardag/sunnudag 19. og 20. og 26. og 27. feb kl 13.00-17.00

https://rosart.is

Flowing with watercolors, pencil and oil.

Opening 18.feb 17:00-18:00

Open 19. - 20. feb and 26. - 27. feb between 13:00 - 17:00 hours

Hvenær
18. - 27. febrúar
Hvar
Kaupvangsstræti 12, Akureyri