Flökkuhjarta
Flökkuhjarta - tónleikar í sveitastíl 29. ágúst klukkan 18:00
Flökkuhjarta - tónleikar í sveitastíl 29. ágúst klukkan 18:00
Enginn aðgangseyrir - Staðsetning, Leyni - Hafnarstræti
Flytjendur:
Hrund Hlöðversdóttir, söngur og harmonika.
Aðalsteinn Jóhannsson, bassi og söngur.
Kristján Edelstein, gítar.
Við bjóðum upp góðan klukkutíma af íslenskri og erlendri sveitartónlist í bland við nokkur frumasamin lög. Einnig fá gestir að heyra litlar prósafrásagnir af íslenskum kúreka sem kallar ekki allt ömmu sína.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Vikar Mar eiganda Leynibarsins, Menningarsjóð KEA og Akureyrarvöku.
,,Kúrekinn bar heimili sitt í brjóstinu, hann þurfti engan og þess vegna var hann aldrei einmana. Frelsi hans fólst í að vera laus við allt, laus við væntingar annarra, laus undan væntingum sjálfs síns. Lifa í andartakinu, því hann var með flökkuhjarta."
Dæmi um lög af efnisskránni:
Óbyggðirnar kalla, On the road again, Take me home, country roads, Jolene, Næturljóð úr fjörðum og mörg fleiri.