FLOTT slær loksins til tónleika á Græna hattinum 1. október!
Hljómsveitin hefur notið mikilla vinsælda síðastliðið ár og spilað víða um landið en nú í fyrsta skipti á Akureyri – leikskólabæ Vigdísar söngkonu. Áfram Holtakot.
FLOTT var valin Bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og lagið þeirra ‘Mér er drull’ sem hefur ómað í útvarpstækjum landsmanna var valið Popplag ársins.
Á tónleikunum mun hljómsveitin spila bæði útgefin lög (sem hafa öll lent á vinsældarlistum) sem og nýtt efni.
Vigdís Hafliðadóttir syngur, Ragnhildur Veigarsdóttir spilar á hljómborð, Sylvía Spilliaert spilar á bassa, Eyrún Engilbertsdóttir spilar á gítar og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur.