Foreldrafræðslumorgunn
Fræðsla um slys og veikindi smábarna
Foreldrafræðslumorgunn þriðjudaginn 22. september klukkan 10. Heitt er á könnunni og öll velkomin!
Hjúkrunarfræðingarnir Málfríður og Margrét koma til okkar og fjalla um slys og veikindi smábarna. Þær koma með dúkkur svo hægt sé að æfa endurlífgun og að ná aðskotahluti úr hálsi.
* Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.
*Fræðslumorgnar eru styrktir af Norðurorku