Foreldramorgnar alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu
				
					Hugguleg stund fyrir foreldra og ungabörnin þeirra.				
				
					Foreldramorgnar alla þriðjudaga frá 10-12.
 
Notaleg stund þar sem foreldrar geta hist og spjallað á meðan krakkarnir leika sér saman.
 
Heitt á könnunni og öll hjartanlega velkomin!
 
 
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.