Til baka

Fornbílahittingur

Fornbílahittingur

Kíktu á stífbónaða stálfáka við Menningarhúsið Hof

Félagar í fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hittast 1. maí við Menningarhúsið Hof og bjóða bæjarbúum og gestum að skoða þar stífbónaða stálfáka 25 ára og eldri. Líklega er um áratugur síðan félagar í fornbíladeildinni byrjuðu að hittast, fyrst við Ráðhústorg en síðar við Menningarhúsið Hof. Eigendur fornbíla sem ekki eru í klúbbnum eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér starfsemi klúbbsins.

Dagskrá:
13.00-14.00 - Fornbílasýning við Menningarhúsið Hof

Allir velkomnir að skoða og spjalla!


Fornbílahittingurinn er samstarfsverkefni Bílaklúbbs Akureyrar, Menningarhússins Hofs og Atvinnu-, markaðs- og menningarmálateymis Akureyrarbæjar.

Hvenær
föstudagur, maí 1
Klukkan
13:00-14:00
Hvar
Menningarhúsið Hof
Verð
Enginn aðgangseyrir
Nánari upplýsingar