Til baka

FORSETAGLUGGINN

FORSETAGLUGGINN

Gluggasýning með forsetum Íslands fyrr og síðar

Verið hjartanlega velkomin í þjóðhöfðingjakaffi. 

Listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten bjóða enn á ný til gluggasýningar á vinnustofu þeirrar síðarnefndu. Sýningin er fyrir alla aldurshópa og er notið utan frá séð. Í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní eru forsetar Íslands fyrr og síðar mættir í kaffi þar sem drukkið er úr mávastellinu. Efniviðurinn kemur frá skrautmunasölunni Fröken Blómfríður, nytjamörkuðum og eigin handraða. Systurnar hvetja alla sem eiga leið hjá að staldra við, gleðjast og rifja upp skemmtilegar minningar. Þær hvetja líka gesti að kvitta í gestabókina í rauða póstkassanum og sækja sér kærleikshjarta sem fer vel í vasa eða er tilvalið til að gefa áfram.

Hvenær
15. - 21. júní
Hvar
Hafnarstræti 88
Verð
Ókeypis