Til baka

Fortíðin í nýju ljósi - Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi.

Fortíðin í nýju ljósi - Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi.

Þorskastríðin í nýju ljósi dr. Guðna Th. Jóhannessonar.

„Árla morguns hinn 14. maí 1973 lagðist breska eftirlitsskipið Othello að bryggju á Akureyri. Sumarið áður hafði fiskveiðilögsaga Íslands verið færð út í 50 sjómílur en Bretar neituðu að viðurkenna nýju línuna og hafði því komið til átaka á miðunum. Hiti var í Íslendingum og það sýndi sig þennan dag í höfuðstað Norðurlands. Í erindinu verður rás viðburða rakin og komið víða við, ekki aðeins niðri á höfn heldur einnig í Ísbúðinni, Kjötiðnaðarstöðinni, lögreglustöðinni og síðast en ekki síst á sal menntaskólans. Að lokum verður rætt hvaða lærdóm megi draga af „Othello-slagnum“ og öðrum þáttum í þorskastríðssögu okkar Íslendinga.“

Þetta er opnunarfyrirlestur í fyrirlestraröðinni Fortíðin í nýju ljósi. Fyrirlestrarnir eru haldnir á Minjasafninu á Akureyri í samstarfi við Akureyrarakademíuna og Sagnfræðingafélag Íslands.

Dagskrá:

Febrúar

  1. febrúar Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi.
    Dr. Guðni Th. Jóhannesson
  2. febrúar Akureyrarveikin og ME-sjúkdómurinn -
    Óskar Þór Halldórsson og dr. Friðbjörn Sigurðsson
  3. febrúar Spegill þjóðar -fréttamyndir í 50 ár og sagan á bakvið þær.
    Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir Rúnarsson

Mars

  1. mars Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum frá 19. og 20. Öld.
    Ragnhildur Björt Björnsdóttir, sagnfræðingur
  2. mars Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809–1871) og brotakenndar heimildir.
    Dr. Erla Hulda Halldórsdóttir
  3. mars Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara.
    Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur
Hvenær
fimmtudagur, febrúar 5
Klukkan
17:00-18:00
Hvar
Aðalstræti 58, Innbærinn, Akureyri, Iceland
Verð
Ókeypis